Magnús Þór Gylfason hefur verið ráðinn til Samtaka iðnaðarins sem ráðgjafi.
Fram kemur í tilkynningu að Magnús hafi verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði samskipta og upplýsingamiðlunar síðastliðið ár. Hann var forstöðumaður samskipta hjá Kviku banka á árunum 2023-2024 og þar áður forstöðumaður samskiptasviðs hjá Landsvirkjun í 11 ár, á árunum 2012-2023. Áður starfaði hann hjá Reykjavíkurborg sem skrifstofustjóri og aðstoðarmaður borgarstjóra og þá var hann um skeið framkvæmdastjóri samskiptasviðs Rio Tinto Alcan á Íslandi.
Magnús er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lagt stund á MBM framhaldsnám í sama skóla með áherslu á stjórnun og stefnumótun.