Ein mesta kynningin á Íslandi

Heimssýningin í Osaka í Japan og opinber heimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, hafa skapað eina mestu Íslandskynninguna sem um getur í Asíu. ViðskiptaMogginn fylgdist með þegar Halla ávarpaði ráðherra í japönsku stjórninni á heimssýningunni.

Halla Tómasdóttir forseti flutti ræðu á aðalviðburði þjóðardags Íslands á heimssýningunni í Osaka 29. maí. Fyrr um daginn hafði hún sótt málþing með ungu fólki í skála Sameinuðu þjóðanna, tekið þátt í pallborðsumræðum um jafnréttismál og heimsótt norræna skálann.

Að því loknu fór aðalviðburður þjóðardagsins fram þegar Halla og Yuichiro Koga, vararáðherra efnahags-, viðskipta- og iðnaðarmála Japans, ávörpuðu gesti. Síðan léku íslenskir tónlistarmenn nokkur lög en deginum lauk með hátíðarkvöldverði Höllu og ráðherrans sem var ekki opinn blaðamönnum.

Ítarlega er fjallað um heimssýninguna á miðopnu ViðskiptaMoggans í þessari viku en þar er meðal annars rætt við Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóra Íslandsstofu, um viðburðinn og ávinninginn af Íslandskynningunni ytra.

Þakkar einstaka gestrisni

Ræða Höllu forseta var svohljóðandi en þýtt er úr ensku.

„Kæri ráðherra. Háttvirtir fulltrúar Japans. Kæru vinir. Ég vil byrja á að lýsa þakklæti mínu til japanskra yfirvalda, skipuleggjenda Heimssýningarinnar 2025 í Osaka og japönsku þjóðarinnar fyrir einstaka gestrisni þeirra í heimsókn minni til þessa fagra lands.

Þó að Japan og Ísland séu staðsett á gagnstæðum hliðum jarðarkringlunnar deila löndin sambandi sem byggir á áratugalöngu samstarfi og gagnkvæmri menningarlegri virðingu.

Þjóðir okkar deila djúpum tengslum sem náttúran hefur mótað. Bæði löndin eru eyjar sem einkennast af hafinu, jarðvarma og dramatískum krafti eldfjalla.

Íslenskur sjávarútvegur er vel þekktur og mikils metinn í Japan. Hann endurspeglar gildi okkar, sjálfbæra nýtingu, heilnæmi og hæstu gæði.

Hafa lært mikið af Japönum

Á Íslandi höfum við einnig lært mikið af fólkinu í Japan. Við höfum lært að meta áhersluna á fagurfræði og venjur við undirbúning og framreiðslu sjávarfangs, sem endurspeglast í vinsældum japanskrar matarmenningar í landi okkar.

Það fyllir mig stolti að segja frá því að ég átti lítinn þátt í að opna fyrsta sushi- og yakitori-veitingastaðinn á Íslandi fyrir um 25 árum síðan. Slík er ást mín á japönskum matarhefðum.

Það er sannarlega mikill heiður að tala hér á Heimssýningunni á þjóðardegi Íslands, degi sem er helgaður friði og jafnrétti, tveimur gildum sem eru í hjarta íslensks samfélags og skipta mig persónulega miklu máli.

Þjóðardagur Íslands á heimssýningunni í Osaka var haldinn fimmtudaginn 29. …
Þjóðardagur Íslands á heimssýningunni í Osaka var haldinn fimmtudaginn 29. maí og var Halla heiðursgestur. Síðdegis ávarpaði hún gesti ásamt Yuichiro Koga, vararáðherra efnahags-, viðskipta- og iðnaðarmála Japans, en þau eru hér saman á mynd. mbl.is/Baldur Arnarson

Í morgun tók ég þátt í umræðum í skála Sameinuðu þjóðanna um frið og sjálfbær þróunarmarkmið, eða heimsmarkmiðin (hjá SÞ), með ungu fólki frá Kansai-svæðinu. Þau töluðu af íhygli, ástríðu og voru sannarlega innblásin. Hvetjandi.

Ég fékk einnig tækifæri til að taka þátt í samtali um jafnrétti kynjanna í kvennaskálanum,“ sagði Halla og tók fram að ekki væri auðvelt að endurspegla mismunandi sjónarhorn kvenna.

Þurfum öll að taka þátt

„Það er einnig ljóst að við þurfum öll að vera breytingaafl. Það felur í sér að fá karla og drengi til að taka þátt í samtalinu um að brúa kynjabilið.

Menningarleg samskipti gegna mikilvægu hlutverki í sambandi okkar. Hvort sem það er í gegnum tónlist, bókmenntir eða hönnun. Íslenskir listamenn finna sem fyrr fyrir hlýhug í Japan og við lærum mikið af japönskum sköpunarkrafti og hefðum. Við erum stolt af því að vera hér sem hluti af Norræna skálanum ásamt nánum samstarfsaðilum okkar, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Norrænt samstarf er mikilvægur hluti af því hver við erum og hvað við stöndum fyrir.

Einar og sér eru þjóðir okkar smáar, en saman myndum við 11. stærsta efnahagssvæði í heimi. Við höfum sýnt að það að setja velferð fólks og sameiginlegrar plánetu okkar í forgrunn efnahagslegrar og félagslegrar framþróunar er formúla sem virkar.

Samfélög verða friðsælli þegar þau velja samvinnu fram yfir sundrungu og réttlátari þegar þau tryggja jöfn tækifæri fyrir alla.

Ríki sem virða alþjóðareglur

Við þökkum Japan fyrir að halda þessa einstöku heimssýningu og fyrir að efla alþjóðlegt samtal og skilning. Ísland og Japan eru líkt þenkjandi þjóðir sem standa að baki alþjóðlegu kerfi sem byggist á reglum. Þetta er fyrsta heimsókn mín til Asíu síðan ég tók við embætti forseta Íslands, en ég hlakka til fleiri heimsókna til að styrkja tengslin milli landa okkar.

Ég býð alla gesti hjartanlega velkomna til að skoða Norræna skálann. Það er rými fyrir íhugun, innblástur og tengsl. Ég vil þakka einlæglega því frábæra teymi sem hefur gert þessa upplifun mögulega. Skuldbinding þeirra og dugnaður endurspegla anda norrænnar sköpunar og samvinnu.

Frá aðalviðburði þjóðardags Íslands á heimssýningunni í Osaka. Halla Tómasdóttir …
Frá aðalviðburði þjóðardags Íslands á heimssýningunni í Osaka. Halla Tómasdóttir forseti Íslands er hér að ávarpa gesti. mbl.is/Baldur Arnarson

Norðurlöndin standa sem eitt og við erum eilíflega þakklát fyrir hið langa og farsæla samband sem við eigum við Japan. Eins og þið segið hér í Japan, er auðvelt að brjóta eina ör, en ekki knippi af örvum. Kærar þakkir,“ sagði Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK