Tveggja daga fundi Bandaríkjamanna og Kínverja lauk í London í gær með það að markmiði að styrkja brothættan frið í viðskiptadeilu ríkjanna. Fundurinn byggðist á símtali Trumps og Xis í síðustu viku og leiddi til þess að samkomulag náðist um „ramma“ sem nú verður lagður fyrir forsetana til samþykktar.
Í rammasamkomulaginu felst von um lausn á helstu deilumálum, meðal annars útflutningstakmörkunum Kína á sjaldgæfum málmum og seglum sem gegna lykilhlutverki í tækni- og varnariðnaði, gegn væntanlegum tilslökunum Bandaríkjanna á útflutningsbanni á háþróuðum örflögum.
Smáatriði og dagsetningar liggja ekki fyrir en báðir aðilar lýstu viðræðunum sem árangursríkum og vilja sínum til að efna fyrri loforð. „Þeir eru komnir aftur á byrjunarreit, en það er þó betra en að vera kominn út af taflborðinu,“ sagði hóflega bjartsýnn Josh Lipsky hjá Atlantic Council.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.