Tveir af stærstu hluthöfum flugfélagsins Play stefna á að gera yfirtökutilboð í alla hluti flugfélagsins og afskrá félagið af hlutabréfamarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Fram kemur að samhliða færi fram hlutafjáraukning.
Yfirtökuhópurinn, sem leiddur er af Einari Erni Ólafssyni forstjóra og Elíasi Skúla Skúlasyni varaformanni stjórnar, ætlar sér áfram að stuðla að samkeppni á íslenskum flugmarkaði neytendum til góða undir merkjum Play með því að bjóða hagkvæm flugfargjöld fyrir Íslendinga og ferðamenn.
Í tilkynningu kemur fram að yfirtökuhópurinn muni leggja áherslu á eftirfarandi þætti í rekstri félagsins:
Í stuttu máli munu farþegar frá Íslandi ekki finna fyrir breytingum á þjónustu félagsins að því er fram kemur í tilkynningu. Yfirbragð og ásýnd félagsins og flugvéla verða óbreytt. Farþegaþoturnar verða ennþá rauðar, áhafnir verða frá Íslandi og starfa eftir íslenskum kjarasamningum.
Yfirtökuhópurinn mun gera tilboð sem hljóðar upp á 1 krónu fyrir hvern hlut og geta seljendur annað hvort fengið greitt í formi hlutar í nýju félagi eða reiðufjár.
„Með þessum áherslum hyggst yfirtökuhópurinn halda áfram þeirri vegferð að auka vægi arðbærs hluta rekstur félagsins, sólarlandaferða og leiguverkefna, og hætta þeim hluta starfseminnar sem skilað hefur lakari árangri, sem er flug til Bandaríkjanna og tengiflug. Yfirtökufélagið verður fjármagnað með að lágmarki 20 miljóna dollara fjárframlagi en af þeirri fjárhæð er þegar skuldbinding fyrir rúmlega þriðjungi fjárhæðarinnar," segir í tilkynningu.
Haft er eftir Einari Erni Ólafssyni, fjárfesti og forstjóra Play að hér sé fyrst og fremst um að ræða áform um praktískar breytingar á starfsemi íslenska flugfélagsins Play.
„Með þeim leggjum við áherslu á arðbæra þætti rekstursins, það er sólarlandaflug, og hættum þeim hluta rekstursins sem hefur ekki skilað árangri. Við hlökkum til að halda áfram að stuðla að samkeppni á flugmarkaði í rauðu vélunum, með íslenskum áhöfnum. Meginmarkmið okkar er nú sem fyrr að bjóða Íslendingum hagkvæm flugfarfargjöld í sólina,“ er haft eftir honum.