Miklar breytingar í orkugeiranum

Friðrik Larsen stofnandi brandr og CHARGE. Neville Ravji, forstjóri og …
Friðrik Larsen stofnandi brandr og CHARGE. Neville Ravji, forstjóri og einn stofnenda Budget Power.

Þátttakendur í ráðstefnunni CHARGE - Powering Energy Brands, sem haldin var í maí sl. í Houston í Texas í Bandaríkjunum, á vegum vörumerkjastofunnar brandr, voru sammála um að miklar breytingar væru að verða í orkugeiranum. 

Þema ráðstefnunnar, sem haldin hefur verið árlega í Evrópu frá árinu 2016, var „Umbreyting í orkuiðnaði“.

Næst verður ráðstefnan haldin í Istanbúl í Tyrklandi í október nk.

Í tilkynningu frá brandr kemur fram að hagaðilar telji að uppbygging orkugeirans felist ekki lengur bara í framleiðslu og afhendingu orku heldur einnig í samböndum, gildum og mannlegum tengslum.

Samkvæmt tilkynningunni mættu til Houston stjórnendur, sérfræðingar, fræðimenn og markaðsfólk úr öllum geirum orkuumhverfisins í Bandaríkjunum.

Skapa sérstöðu

„Í stað þess að líta á orku sem hrávöru sem ekki er hægt að markaðssetja var talað um mikilvægi þess að ná til viðskiptavina með því að skapa sérstöðu á markaði. Orkugeirinn þarf að brjótast út úr norminu og til þess er þörf á „uppreisnargjarnri” hugsun (e. rebellous thinking) og var það rauður þráður í mörgum fyrirlestrum og pallborðum ráðstefnunnar, ekki til að trufla heldur til að auka framsýni og spyrna gegn úreltum hugmyndum. „Uppreisnargjarn“ í þessu samhengi stendur fyrir framsýni og hugrekki," segir í tilkynningunni.

Í dag eru samkvæmt tilkynningunni gerðar kröfur um meira en bara áreiðanleika vörunnar og í auknu mæli horft á aðra þætti við val á orkugjafa eins og t.d. uppruna, ímynd, þægindi, verð og samfélagslega ábyrgð.

„Vaxandi samkeppni ýtir undir þörf fyrirtækjanna á að þekkja ímynd sína í augum viðskiptavina og annarra hagaðila, bæði inn á við og út á við rétt eins og brandr vísitalan mælir. Þannig getur fyrirtækið m.a. séð hvort það er skörun á milli ímyndar og sjálfsmyndar sem getur hjálpað við stefnumiðaða markaðssetningu.“

Þá segir í tilkynningunni að máli skipti að vörumerkið sé sterkt því það auki arðsemi, sem og traust og tryggð viðskiptavina og aðgreiningu á markaði. 

Stoltir fulltrúar CHARGE Awards viðurkenninga sem veittar voru nú í …
Stoltir fulltrúar CHARGE Awards viðurkenninga sem veittar voru nú í fyrsta sinn í Bandaríkjunum.

Veittu verðlaun

Í tilkynningunni kemur fram að CHARGE hafi veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu frá árinu 2016 en nú voru þau afhent í fyrsta skiptið í Bandaríkjunum.

Viðurkenninguna „Retailer Brand of the Year” hlaut Reliant Energy (dótturfyrirtæki NRG Energy) og viðurkenninguna „Utility Brand of the Year” fékk FortisBC sem er kanadískt orkufyrirtæki.

CHARGE heiðraði einnig nokkra framtíðarleiðtoga og komu þau m.a. frá Octopus Energy US, EIQdigital og Schneider Electric, samkvæmt tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK