Endurkaup skuldabréfa til skoðunar

Gestir skoða nýja leikjatölvu í Tókýó. Ríkissjóður Japans er mjög …
Gestir skoða nýja leikjatölvu í Tókýó. Ríkissjóður Japans er mjög skuldsettur en hefur, til þessa, notið ágætis kjara á skuldabréfamarkaði. AFP/Kazuhiro Nogi

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 10. júní.

Stjórnvöld í Tókyó íhuga nú að kaupa til baka hluta af þeim japönsku ríkisskuldabréfum sem hafa lengstan líftíma. Ríkissjóður Japans hefur gefið út skuldabréf með 20, 30 og 40 ára líftíma en ávöxtunarkrafa þeirra hefur farið hækkandi að undanförnu vegna minnkandi eftirspurnar.

Reuters greinir frá þessu og hefur eftir vel tengdum heimildarmönnum innan stjórnsýslunnar. Er minnkuð eftirspurn eftir mjög löngum japönskum ríkisskuldabréfum m.a. rakin til þess að lífeyrissjóðir og aðrir hefðbundnir kaupendur slíkra skuldabréfa hafa haldið að sér höndum, og eins gætir vaxandi óróleika á meðal fjárfesta vegna skuldasöfnunar ríkja um allan heim.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK