Íslandsbanki hefur á undanförnum árum skoðað ýmis tækifæri bæði til innri og ytri vaxtar bæði hér innanlands og utan. Í viðtali við ViðskiptaMoggann ræðir Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka um nýafstaðið útboð á hlut ríkisins í bankanum, mögulegar samrunaviðræður við Kviku, framtíðarsýn bankans og margt fleira.
Íslenskir bankar þurfa að lúta ströngustu reglum í Evrópu. Jón Guðni segir að þörf sé á endurskoðun á regluverki hér á landi.
„Í fyrsta lagi eru eiginfjárkröfurnar hér á landi mjög háar og reglubyrðin almennt mikil. Við erum með dæmi um svokallaða gullhúðun þar sem við förum lengra en Evrópureglur segja til um og það ítrekað. Þetta mikla regluverk kæfir stundum frumkvæðið.“
Þá bendir hann á að skattbyrðin sé sérstaklega þung fyrir íslenska banka.
„Við erum með hæstu beinu bankaskatta í Evrópu og síðan bætast við óbeinir skattar eins og sérstök fjársýsluskattlagning og bankaskattur,“ bætir hann við.
Spurður hvernig rekstur Íslandsbanka hafi gengið að undanförnu segir Jón Guðni að hann hafi gengið vel.
„Fyrsti ársfjórðungur var undir væntingum en undirliggjandi rekstur er traustur, og við erum bjartsýn fyrir næstu misseri enda margt spennandi fram undan út frá nýjum stefnuáherslum,“ segir hann.
Lesa má viðtalið í heild sinni í ViðskiptaMogganum.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.