Stólpi flytur á Gullhellu

Rúnar Höskuldsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, og Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa.
Rúnar Höskuldsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, og Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa. Eggert Jóhannesson

Í júlí nk. flytur Stólpi, sem áður hét Stólpi Gámar og er núna dótturfélag Styrkáss, skrifstofur sínar og þjónustuhús í nýtt 1.500 fermetra húsnæði við Gullhellu í Hafnarfirði en vélsmiðja og kæliþjónusta verða áfram á sama stað og áður í Sægörðum í Reykjavík. Trésmiðjan verður sömuleiðis áfram á sínum stað í Vatnagörðum. „Þetta verður mikil bylting og gefur okkur tækifæri til að útvíkka þjónustuna enn frekar. Það má segja að við séum að þróast í þá átt að veita heildarlausn fyrir aðila sem reka framkvæmdasvæði. Þar má nefna vinnubúðir, girðingar, rafstöðvar og ljós.

Við viljum líka vera alhliða þjónustuveitandi fyrir skipafélögin og eiga alla íhluti á lager fyrir kæli- og frystibúnað og annað,“ segja Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa, og Rúnar Höskuldsson, framkvæmdastjóri sölusviðs, í samtali við ViðskiptaMoggann en fyrirtækið selur einnig og leigir húseiningar, gáma og tjaldskemmur m.a.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK