Verður áfram í Breiðholti

Björgvin Hafþór Ríkharðsson í leik með ÍR á síðasta tímabili.
Björgvin Hafþór Ríkharðsson í leik með ÍR á síðasta tímabili. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleiksmaðurinn Björgvin Hafþór Ríkharðsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍR. Er hann nú samningsbundinn til sumarsins 2027.

Björgvin Hafþór, sem er uppalinn hjá Skallagrími, gekk til liðs við ÍR í nóvember á síðasta ári og var það í annað sinn á ferlinum sem hann samdi við félagið.

„Það er ekki margir leikmenn sem hafa þann eldmóð og aga sem Björgvin sýnir – hann mætir ekki bara í leik, hann hefur áhrif. Orkan, vinnusemin og metnaðurinn hans breyta stemningunni á æfingum og í leikjum.

Þetta er nákvæmlega sá grunnur sem við viljum byggja á,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert