Frá í fimm mánuði vegna támeiðsla

Darius Garland missir mögulega af upphafi tímabilsins.
Darius Garland missir mögulega af upphafi tímabilsins. AFP/Dustin Satloff

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Darius Garland, leikmaður Cleveland Cavaliers, hefur gengist undir aðgerð á tá og verður frá í fimm mánuði. 

Frá þessu segir félagið en Garland er lykilmaður hjá liðinu. Hann glímdi við meiðsli og var hálftæpur í úrslitakeppninni en Cleveland hafnaði í efsta sæti Austurdeildarinnar en datt úr fyrir Indiana Pacers í undanúrslitum. 

Garland mun ekki missa af miklu með Cleveland en næsta tímabil í NBA hefst ekki fyrr en í október. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert