Nýliðar Ármanns hafa styrkt sig fyrir komandi tímabil í úrvalsdeild kvenna í körfubolta en félagið hefur samið við hina bandarísku Khiönu Johnson.
Johnson, sem er 26 ára leikstjórnandi, kemur frá DSK Brandýs nad Labem í Tékklandi en hún hefur leikið með félögum í Króatíu, Rúmeníu og Sviss. Hún útskrifaðist frá Radford-háskóla árið 2020 en hún var í lykilhlutverki í liði skólans.
„Við erum gríðarlega spennt að fá Khiönu til liðs við okkur,“ segir Karl Guðlaugsson þjálfari Ármanns í tilkynningu frá félaginu. „Hún kemur með þá orku, leikreynslu og gæði sem við viljum byggja á í okkar fyrstu skrefum í efstu deild. Hún mun án efa verða lykilleikmaður í okkar vegferð.“
Ármann vann 1. deildina á síðustu leiktíð og tryggði sér þar með sæti í úrvalsdeildinni.