Metskráning á hestaíþróttamót

Reykjavíkurmót Fáks hefst um næstu helgi.
Reykjavíkurmót Fáks hefst um næstu helgi. Ljósmynd/Aðsend

Skráningarmet hefur verið slegið fyrir hið árlega Reykjavíkurmót Fáks sem fer fram í Víðidalnum frá 8. til 15. júní.

Alls hafa borist 1.027 skráningar á mótið, sem hefur lengi verið eitt stærsta hestaíþróttamót sem haldið er á Íslandi.

Í tilkynningu frá Landssambandi hestamannafélaga kemur fram að vegna þess að fjöldi skráninga hafi farið fram úr björtustu vonum hafi þurft að bæta við heilum keppnisdegi. Mikil ánægja ríki vegna þess mikla vaxtar og áhuga sem ríkir á hestaíþróttum.

Reykjavíkurmót Fáks er World Ranking-mót, sem þýðir að árangur keppenda í WR-greinum telur inn á heimslista.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert