Ljóst er að stór skörð eru höggvin í íslenska kvennalandsliðið í handknattleik eftir að alls fimm leikmenn tilkynntu að skórnir væru komnir á hilluna í kjölfar þess að síðasta tímabili lauk. Tveir leikmenn eru þá hættir að spila með landsliðinu. Einn leikmaður er barnshafandi og einn leikmaður hefur tilkynnt að hún taki sér tímabundið hlé. Alls hafa því níu leikmenn helst úr lestinni á skömmum tíma.
Leikmennirnir fimm sem eru alveg hættir eru Þórey Rósa Stefánsdóttir, Steinunn Björnsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Karen Knútsdóttir og Sigríður Hauksdóttir. Þess má þá geta að bæði Steinunn og Karen eru barnshafandi.
Rut Arnfjörð Jónsdóttir sagði við Morgunblaðið í gær að hún væri hætt að leika fyrir landsliðið en spili áfram. Sunna Jónsdóttur er einnig hætt með landsliðinu en íhugar nú hvort hún spili yfirhöfuð áfram.
Perla Ruth Albertsdóttir er ólétt að sínu öðru barni og Berglind Þorsteinsdóttir ákvað að taka sér hlé til að jafna sig á þrálátum hnémeiðslum undanfarin ár.
„Rut er Rut, ein okkar allra besta handboltakona frá upphafi og ef hún helst heil þá mun ég að sjálfsögðu reyna mitt til að fá hana til að halda áfram með okkur. Svo koma Perla og Berglind vonandi inn í þetta fljótlega aftur,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari í samtali við Morgunblaðið.
„Þú spyrð hvort þetta sé áhyggjuefni. Það er allavega ekki æskilegt að missa svona marga góða leikmenn og karaktera á sama tíma. En svona er staðan, við glímum við hana og kennum þeim áhyggjum sem fylgja þessum breytingum að synda,“ sagði Arnar, spurður hvort hann hefði áhyggjur af því að svona margir leikmenn væru horfnir á braut á einu bretti.
Landsliðsþjálfarinn viðurkenndi að hafa ekki búist við því að leikmennirnir yrðu þetta margir. „Nei, kannski ekki. Þetta var ekki það sem ég var að vonast eftir í byrjun síðasta tímabils, að þetta yrði staðan í lok þess. Það voru þarna nöfn sem voru búin að gefa það út að þetta yrði síðasta tímabilið þeirra en ekki allar.“
Arnar sagði ekki einungis góða leikmenn vera horfna á braut heldur sömuleiðis mjög sterka karaktera með mikla reynslu.
„Það er alveg óhætt að segja það. Þetta eru stelpur sem voru komnar inn í landsliðið fyrir minn tíma og hafa verið með mér meira og minna frá því að ég tók við. Þá settum við okkur fljótlega ákveðin markmið, hófum vegferðina margumtöluðu þar sem ein varðan á leiðinni var að koma liðinu inn á EM sem var núna í desember.
Þessar stelpur eiga ótrúlega mikinn þátt í því sem við erum búin að vera að gera, innan vallar sem utan. Þetta eru miklir karakterar og leiðtogar og eiga ekkert annað en mikið hrós skilið fyrir sitt framlag til íslensks kvennahandbolta og landsliðsins í gegnum tíðina. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem ég átti með þeim og það verður eftirsjá að þessum stelpum. Þetta eru miklar og flottar fyrirmyndir.“
Umfjöllunina má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.