Füchse Þýskalandsmeistari eftir torsóttan sigur

Daninn Mathias Gidsel er þýskur meistari.
Daninn Mathias Gidsel er þýskur meistari. Ljósmynd/Füchse Berlin

Füchse Berlin er Þýskalandsmeistari eftir torsóttan sigur á Rhein-Neckar Löwen, 38:33, í lokaumferðinni Mannheim í dag.

Füchse endar með 58 stig, stigi meira en Magdeburg sem vann Bietigheim, 35:25, á útvelli.

Füchse lenti í vandræðum með Rhein-Neckar Löwen sem var yfir með þremur mörkum í hálfleik, 20:17. Á síðustu tuttugu mínútunum var þó Füchse mun betra liðið og vann að lokum öruggan sigur.

Tim Freihöfer skoraði ellefu mörk fyrir Füchse og Mathias Gidsel tíu.

Hjá Magdeburg skoraði Ómari Ingi Magnússon sex mörk en Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki með vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert