Aron hefur spilað sinn síðasta leik

Aron Pálmarsson hættir eftir tímabilið.
Aron Pálmarsson hættir eftir tímabilið. mbl.is/Eyþór

Hvorki Aron Pálmarsson né Bjarki Már Elísson eru með Veszprém í oddaleik úrslitanna um ungverska meistaratitilinn gegn Pick Szeged. 

Staðan er 1:1 í einvíginu og úrslitaleikurinn er í gangi en Janus Daði Smárason leikur með Pick Szeged. 

Aron og Bjarki eru ekki í 16 manna hópi þjálfarans Xavier Pascual en þeir voru báðir með í leik tvö. 

Aron ætlar að hætta í handbolta eftir þetta tímabil og hefur því leikið sinn síðasta leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert