DeChambeau úr leik - McIlroy áfram

Sam Burns fagnar góðu pútti á hringnum í dag. Hann …
Sam Burns fagnar góðu pútti á hringnum í dag. Hann verður í síðasta ráshópnum á morgun. AFP/PATRICK SMITH

Eftir tvo keppnisdaga eru einungis þrír kylfingar undir pari eftir 36 holur á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. 

Eins og við var að búast er Oakmont-völlurinn erfiður viðureignar eins og hann var bæði 2006 og 2017 þegar mótið var haldið á vellinum. Ýmsir álitsgjafar spáðu því að mótið myndi vinnast á höggafjölda sem væri yfir pari vallarins samtals og gæti það hæglega orðið niðurstaðan. 

Í kvöld fór að rigna hressilega og spurning hvort flatirnar verði eitthvað mýkri á morgun. Þegar einungis öfáir voru eftir úti á vellinum var leik frestað vegna eldingahættu. 

Bandaríkjamaðurinn Sam Burns er efstur á þremur undir pari. Hann lék á samtals fimm undir í dag sem er líklega einn besti hringur í sögu Opna bandaríska mótsins þegar það hefur farið fram á Oakmont. 

JJ Spaun er höggi á eftir og þá kemur Norðmaðurinn Viktor Hovland á -1 en hann lék á tveimur undir í dag. Enginn þessara kylfinga hefur unnið risamót til þessa á ferlinum. 

Ástralinn Adam Scott er á parinu og spurning hvort hann geti blandað sér í baráttuna. Hann er orðinn 45 ára gamall og sigraði á Masters fyrir tólf árum síðan. Scott hefur verið í hópi þeirra kylfinga sem slá lengri höggin best í tvo áratugi eða svo en stutta spilið og púttin hafa komið í veg fyrir fleiri sigra á risamótunum. 

Scheffler ekki út úr myndinni

Margir snjallir kylfingar þurftu að berjast fyrir keppnisréttinum um helgina en keppendafjöldi er skorinn niður eftir 36 holur venju samkvæmt. 7 yfir pari dugir til að komast áfram sem sýnir hversu erfitt uppdráttar kylfingar eiga á vellinum. 

Bryson DeChambeau hefur leikið afar vel á risamótunum í rúmt ár en er úr leik á samtals 10 yfir. Honum var spáð velgengni og þótti næst sigurstranglegastur hjá mörgum veðbönkum. 

Bryson DeChambeau var þungt hugsi í dag enda lék hann …
Bryson DeChambeau var þungt hugsi í dag enda lék hann á 7 yfir pari. AFP/ANDY LYONS

Scottie Scheffler þótti lang líklegastur en hann er á 4 höggum yfir pari. Ekki er þó hægt að afskrifa hann þótt hann hafi ekki verið í stuði fyrstu tvo dagana. 

Mótið er þriðja risamót ársins hjá körlunum. Scheffler sigraði á PGA meistaramótinu í síðasta mánuði og Rory McIlroy á Masters í apríl. McIlroy fékk glæsilegan fugl á lokaholunni í kvöld og komst þar með áfram á 6 yfir pari. Hann hefur ekki leikið vel eftir Masters mótið og var því ekki búist við miklu af honum. 

Skor hjá völdum kylfingum: 

Brooks Koepka +2
Tyrrell Hatton +3
Jason Day +3
Keegan Bradley +3
Jon Rahm +4
Collin Morikawa +4
Jordan Spieth +5
Xander Schauffele +6
Patrick Reed +7
Hideki Matsuyama +7
Matt Fitzpatrick +7

Skor hjá völdum kylfingum sem komust ekki áfram:

Ludvig Áberg +8
Wyndham Clark +8
Patrick Cantley +8
Phil Mickelson +8
Cameron Smith +8
Tommy Fleetwood +9
Dustin Johnson +10
Joaquin Nieman +10
Justin Thomas +12
Shane Lowry +17

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka