Tapaði í fyrstu lotu en staðan er jöfn

Gunnlaugur Árni Sveinsson.
Gunnlaugur Árni Sveinsson. Ljósmynd/GSÍ

​Gunnlaugur Árni Sveinsson hóf í dag keppni í Arnold Palmer Cup í Suður-Karólínu, fyrstur íslenskra kylfinga, en það er sterkasta áhugamannamót heims.

Hann er í liði alþjóðlegra kylfinga úr bandaríska háskólagolfinu sem mætir liði Bandaríkjanna.

Gunnlaugur lék í dag „betri bolta“ með Meju Örtengren frá Svíþjóð og þau biðu lægri hlut í sínum leik, 3/2, gegn Catherine Park og Jack Turner en það þýðir að þau síðarnefndu voru þremur yfir þegar tveimur holum var ólokið og sigur þeirra því í höfn.

Staðan í keppninni er 4:4 en fjórum viðureignum er ólokið.

Á morgun eru síðan leiknar 36 holur og báðir hringirnir í fjórmenningi þar sem kylfingar leika einum bolta og skiptast á að slá.

Gunnlaugur mun spila með karlkylfingi á fyrri hringnum og með kvenkylfingi á seinni hringnum.

Á lokadeginum á laugardaginn er síðan leikinn tvímenningur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert