Frestað um viku og fært á Hlíðarvöll

Anna Júlía Ólafsdóttir, fyrir miðju, varð Íslandsmeistari í fyrra.
Anna Júlía Ólafsdóttir, fyrir miðju, varð Íslandsmeistari í fyrra. Ljósmynd/Seth@golf.is

Íslandsmótinu í holukeppni kvenna hefur verið frestað um eina viku og fært á Hlíðarvöll 20. – 23. júní. Mótið átti upprunalega að fara fram á Urriðavelli 13. – 15. júní.

„Eftir mat á vallaraðstæðum á Urriðavelli var það ákvörðun mótsstjórnar og GSÍ í samráði við Golfklúbbinn Odd að ástand flata á Urriðavelli væri því miður ekki nægilega gott svo að upplifun keppenda yrði sú sem allir vilja,“ segir í tilkynningu frá Golfsambandi Íslands.

Mótið mun fara fram samhliða karlaflokki. Kvennaflokkur mun leika 36 holu höggleik á föstudegi, frí á laugardegi, 16- og 8-manna úrslit á sunnudegi og undanúrslit og úrslit á mánudegi.

Ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í holukeppni er Anna Júlía Ólafsdóttir úr GKG en hún vann mótið í fyrsta sinn í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert