„Er það ekki markmiðið hjá öllum?“

Heiðrún Anna Hlynsdóttir vann Hvaleyrarbikarinn.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir vann Hvaleyrarbikarinn. mbl.is/Óttar

Selfyssingurinn Heiðrún Anna Hlynsdóttir sagði pútterinn hafa verið bestu kylfuna í golfpokanum síðustu dagana þegar hún lék virkilega vel á Hvaleyrarvelli og sigraði í Hvaleyrarbikarnum hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði í gær.

„Ég spilaði vel og var stöðug. Ég púttaði vel og bjargaði til að mynda góðum pörum með því auk þess að setja pútt niður fyrir fuglum. Þetta gekk því vel á heildina litið en ég myndi segja að púttin hafi skipt mestu máli þótt slátturinn hafi einnig verið góður,“ sagði Heiðrún og frammistaðan lofar góðu því mikið er jú eftir af keppnistímabilinu.

„Sveiflan lítur vel út og púttin eru mun betri en í fyrra.“

Þarf að vera á tánum á seinni 9

Íslandsmótið verður haldið hjá Keili í ágúst og eftir sigur í Hvaleyrarbikarnum er skiljanlega fiðringur hjá Heiðrúnu Önnu fyrir Íslandsmótinu.

„Já það er mjög spennandi og skemmtilegt að hafa Íslandsmótið hérna á Hvaleyrinni. Það var fínt að fá þessa upphitun fyrir Íslandsmótið og það verður geggjað mót. Er ekki markmiðið hjá öllum sem eru í þessu að vinna Íslandsmeistaratitilinn?

Í síðustu viku spilaði ég hér í fyrsta skipti eftir breytingarnar á síðari níu holunum. Það er mikil áskorun að takast á við völlinn og maður þarf að vera á tánum á seinni 9. Þetta eru erfiðar holur og sérstaklega þegar vindurinn blæs,“ sagði Heiðrún Anna Hlynsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert