Heiðrún sigraði á Hvaleyrinni

Heiðrún Anna Hlynsdóttir sigraði í Hafnarfirði og var fimm höggum …
Heiðrún Anna Hlynsdóttir sigraði í Hafnarfirði og var fimm höggum á undan Elsu Maren Steinarsdóttur. Ljósmynd/seth@golf.is

Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss stóð uppi sem sigurvegari í kvennaflokki í Hvaleyrarbikarnum, einu af stigamótum Golfsambands Íslands, sem lauk í Hafnarfirði í dag.

Heiðrún lék lokahringinn á 70 höggum, einu höggi undir pari vallarins, og var samtals á 216 höggum á hringjunum þremur, þremur höggum yfir pari.

Elsa Maren Steinarsdóttir úr GR veitti Heiðrúnu keppni allan tímann en þær voru í nokkrum sérflokki á mótinu. Elsa lék á 73 höggum í dag, tveimur yfir pari vallarins, og lauk því keppni á 221 höggi samtals, fimm höggum á eftir Heiðrúnu.

Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð þriðja á samtals 15 höggum yfir pari og Þóra Sigríður Sveinsdóttir úr GR varð fjórða á 17 höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert