Haraldur Franklín leiðir í Hafnarfirði

Haraldur Franklín Magnús er með naumt forskot í Hafnarfirði.
Haraldur Franklín Magnús er með naumt forskot í Hafnarfirði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haraldur Franklín Magnús leiðir í Hvaleyrarbikarnum í golfi, sem er eitt af stigamótum GSÍ, en leikið er á velli Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.

Haraldur Franklín var að ljúka leik á 68 höggum eða þremur höggum undir pari en Aron Emil Gunnarsson fylgir fast á hæla hans á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari. 

Fjöldi kylfinga á ennþá eftir að ljúka leik, þar á meðal eru þeir Elvar Már Kristinsson og Logi Sigurðsson sem eru báðir á tveimur höggum undir pari sem stendur. 

Skorið verður niður eftir annan keppnisdag en þriðji og síðasti hringurinn verður leikinn á sunnudaginn kemur, þann 1. júní.

Uppfært:
Þegar allir hafa lokið fyrsta hring er Haraldur Franklín Magnús efstur á þremur höggum undir pari og síðan koma Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss, Elvar Már Kristinsson úr GR og Logi Sigurðsson úr GS á tveimur höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert