Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir er úr leik eftir tvo hringi á Jabra Ladies-mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi en leikið er í Evian í Frakklandi.
Guðrún lauk leik á samanlagt sex höggum yfir pari en þurfti að leika á fjórum höggum yfir pari til að fara í gegnum niðurskurðinn og spila lokahringinn á morgun.
Hún lék báða hringina á 74 höggum, þremur höggum yfir pari, og er jöfn í 89. sæti eins og sakir standa en enn eiga einhverjir kylfingar eftir að klára annan hring.