Andrea Bergsdóttir lék öruggt golf á öðrum hring á Allegria-Open golfmótinu sem fram fer í Austurríki en mótið er hluti af LET-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu.
Andrea lét annan hringinn á samtals 70 höggum eða pari vallarins en hún fékk þrjá fugla á hringum og þrjá skolla.
Fyrsta hringinn lék hún á 72 höggum en hún er sem stendur í 13.-20. sæti á tveimur höggum yfir pari og svo gott sem örugg í gegnum niðurskurðinn sem miðast þessa stunda við sjö högg yfir parið.
Keppni á öðrum hring var lokið í morgun þar sem fresta þurfti keppni í gær vegna þrumuveðurs og keppni á lokahringnum er nýhafin í Austurríki.
Uppfært:
Andrea fór auðveldlega í gegnum niðurskurðinn í 13.-20. sæti og leikur þessa stundina á þriðja og síðasta hringnum.