Ragnhildur Kristinsdóttir lék frábært golf á öðrum hring á Allegria Open-golfmótinu í Austurríki í morgun en mótið er hluti af LET-mótaröðinni.
Ragnhildur lék á samtals 68 höggum eða tveimur höggum undir pari vallarins. Hún fékk fimm fugla á hringnum og þrjá skolla.
Fyrsta hringinn í gær lék hún hins vegar á 17 höggum yfir pari og er því samtals á 15 höggum yfir pari. Hún á því litla sem enga möguleika á því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Andrea Bergsdóttir á eftir að ljúka sínum öðrum hring en hún er sem stendur í 14.-20. sæti á þremur höggum yfir pari.