Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir keppir á sínu þriðja móti á LET-Access-mótaröðinni í golfi á árinu er hún hefur leik á Allegria Open-mótinu í Stegersbach í Austurríki klukkan 6:45 að íslenskum tíma í dag. LET-Access er næststerkasta mótaröð Evrópu og sú þriðja stærsta í heimi.
Ragnhildur hafnaði í 47. sæti á móti í Frakklandi í apríl og í níunda sæti á móti í Portúgal fyrr í þessum mánuði.
„Það eru tvö mót búin, það var eitt í apríl og annað í byrjun maí. Ég komst í gegnum niðurskurðinn á báðum mótum. Aprílmótið gaf góða mynd af hversu gott árið getur verið hjá mér. Þar voru fimm lélegar holur í röð sem eyðilögðu heilt mót.
Ég náði svo að púsla saman heilu góðu móti í Portúgal. Þar sýndi ég hvað ég get og það mót gefur mér gott sjálfstraust fyrir framhaldið. Mér finnst ég vera á mjög góðum stað í golfinu núna og í raun besta staðnum sem ég hef verið á í langan tíma, síðan ég kláraði háskólagolfið. Ég er með meira sjálfstraust en ég hef haft í mínum leik í nokkurn tíma,“ sagði Ragnhildur í samtali við Morgunblaðið.
Ragnhildur gerðist atvinnumaður í byrjun árs 2023 og hefur mikið verið á ferð og flugi síðan. Það minnkar ekki á þessu ári.
„Þetta er ferðatöskulíf. Ég fer til Austurríkis og þaðan beint til Spánar núna í maí. Ég kem heim í viku, fer síðan út í viku og aftur heim í viku og eftir það fer ég út í mánuð. Ég næ kannski þremur vikum á Íslandi í sumar,“ sagði Ragnhildur en tvær hliðar eru á lífi atvinnumanna í golfi, sem eru ekki komnir í allra fremstu röð með tilheyrandi verðlaunafé.
„Þetta er bæði gaman og þreytandi á sama tíma. Maður lærir að elska þetta. Þetta er auðvitað einstaklingsíþrótt og þú færð ekki borgað nema þú náir niðurskurði og góðum árangri. Þetta getur verið mjög kostnaðarsamt ef þú nærð ekki niðurskurði nokkur mót í röð. Þetta er mjög gaman þegar þú nærð niðurskurðinum og lífið verður einfaldara. Fimmtán ára Ragga sá ekki fyrir sér þessa hlið á þessu,“ sagði hún.
Viðtalið við Ragnhildi má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.