Andrea ofarlega í Austurríki

Andrea Bergsdóttir lék vel á fyrsta hringnum í dag.
Andrea Bergsdóttir lék vel á fyrsta hringnum í dag. Ljósmynd/seth@golf.is

Andrea Bergsdóttir var lengi vel í hópi efstu kvenna á fyrsta hringnum á Allegria-mótinu í golfi sem hófst í Austurríki í morgun og er hluti af Let Access-mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu.

Andrea var á meðal fimm til sjö efstu þar til hún fékk tvo skolla í röð á 16. og 17. holu og lauk hringnum á tveimur höggum yfir pari vallarins. Þar er hún sem stendur í 43. sæti af 124 keppendum en er aðeins tveimur höggum frá tíunda sætinu. Margar eiga enn eftir að ljúka fyrsta hringnum.

Ragnhildur Kristinsdóttir átti hins vegar hálfgerðan martraðarhring, sérstaklega fyrri níu holurnar, en hún lék hann á 17 höggum yfir pari og er í neðsta sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert