„Versta frammistaða sem ég hef sýnt í úrslitaleik“

Aryna Sabalenka með silfurverðlaun á opna franska meistaramótinu í tennis.
Aryna Sabalenka með silfurverðlaun á opna franska meistaramótinu í tennis. AFP/Julien De Rosa

Hvítrússneska tenniskonan, Aryna Sabalenka, sagði að það hefði verið sárt að spila ekki betur í tapi sínu gegn Coco Gauff í úrslitaleik opna franska meistaramótsins í tennis í gær.

Coco Gauff vann nokkuð sannfærandi sigur, 6-7 (5-7), 6-2 og 6-4 og tryggði sér þannig sinn fyrsta risatitil á leir.

Þetta var annar úrslitaleikurinn á risamóti í röð sem Sabalenka tapar en hún tapaði fyrir Madison Keys á opna ástralska meistaramótinu í janúar sl.

Sabalenka spilaði ekki vel í gær og sagði að þessi frammistaða væri hennar versta í úrslitaleik á hennar ferli. Eftir tapið gegn Keys á opna ástralska grínaðist hún með að hún þyrfti mögulega að reka teymi sitt en í gær bað hún þau afsökunar á arfaslakri frammistöðu sinni.

„Í hreinskilni var þetta versti tennis sem ég hef spilað í marga mánuði. Aðstæðurnar voru skelfilegar og hún var hreinlega betri en ég í dag. Ég held að ég hafi verið vanstillt tilfinningalega og ég höndlaði þetta ekki vel.“

Aryna Sabalenka sýnir pirring sinn í leiknum gegn Coco Gauff …
Aryna Sabalenka sýnir pirring sinn í leiknum gegn Coco Gauff í gær. AFP/Thibaud Moritz

„Ég held að hún hafi ekki unnið vegna þess að hún spilaði frábærlega heldur vegna þess að ég gerði aragrúa af mistökum,“ sagði Sabalenka en hún gerði 70 óþvinguð mistök sem er það mesta í einum leik á opna franska meistaramótinu í ár.

„Ég get ekki farið út á völlinn í hvert skipti sem ég mæti Gauff í úrslitaleik og spilað svona lélegan tennis. Mér leið eins og það væri einhver að grínast í mér og það væri verið að sjá hversu mikið ég gæti höndlað áður en ég myndi brotna,“ sagði Sabalenka að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert