Norski skákmaðurinn Magnus Carlsen var ekki ýkja sáttur þegar hann laut í lægra haldi fyrir Indverjanum Gukesh Dommaraju á Norway Chess mótinu í Stafangri í síðustu viku.
Dommaraju, sem er aðeins 19 ára gamall og ríkjandi heimsmeistari í skák, trúði vart sínum eigin augum þegar hann áttaði sig á því að sigur væri í höfn gegn fimmfalda heimsmeistaranum Carlsen.
Norðmaðurinn var ekki jafn sáttur og barði í borðið þegar ljóst var að hann væri búinn að tapa eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði:
OH MY GOD 😳🤯😲 pic.twitter.com/QSbbrvQFkE
— Norway Chess (@NorwayChess) June 1, 2025