Roma hefur áhuga á Alberti

Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson. Ljósmynd/Alex Nicodim

Ítalska knattspyrnufélagið hefur áhuga á landsliðsmanninum Alberti Guðmundssyni samkvæmt ítalska miðlinum Corriere dello Sport.

Albert var að láni hjá Fiorentina frá Genoa á síðustu leiktíð en hann skoraði sex mörk og lagði upp eitt í 24 leikjum í ítölsku A-deildinni.

Fiorentina getur keypt Albert á 17 milljónir evra en ólíklegt þykir að félagið nýti kaupréttinn.

Samkvæmt Corriere dello Sport vill Roma fá Albert að láni til félagsins en félagið er í leit að sóknarmanni. Roma hafnaði í fimmta sæti deildarinnar, einu sæti fyrir ofan Fiorentina, og mun leika í Evrópudeildinni á komandi leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert