Hélt hreinu í Svíþjóð – Fanney á toppnum

Guðrún Arnardóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Guðrún Arnardóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Karítas

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir stóð vaktina í vörn Rosengård í 3:0-sigri liðsins gegn Linköping í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag.

Ísabella Sara Tryggvadóttir var sömuleiðis í byrjunarliði Rosengård en María Catharina Ólafsdóttir Gros lék allan leikinn með Linköping.

Mörk Rosengård skoruðu Emilia Larsson, Molly Johansson og Emilie Woldvik en liðið situr í sjötta sæti deildarinnar með 16 stig. Linköping er í næstneðsta sæti með fimm stig.

Allar í byrjunarliðinu

Landsliðskonurnar Katla Tryggvadóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Guðný Árnadóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad er liðið gerði 2:2-jafntefli gegn Brommapojkarna í dag.

Beata Olsson og Viktoria Persson skoruðu mörk Kristianstad en Joanna Bækkelund og Alice Ahlberg gerðu mörk Brommapojkarna.

Kristianstad situr í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig.

Markvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir var á bekknum hjá Häcken þegar liðið vann stórsigur gegn AIK, 6:0, í dag.

Häcken er á toppi deildarinnar með 24 stig eftir 11 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert