Leikmenn og þjálfarateymi karlalandsliðs Úsbekistans fengu allir rafbíla að gjöf frá forseta þjóðarinnar, Shavkat Mirziyoev, eftir að liðið tryggði sér sæti á HM 2026.
Frá þessu er meðal annars greint hjá Kursiv, miðli frá nágrannaríkinu Kasakstan, og sænska miðlinum Aftonbladet.
Er þetta í fyrsta skipti sem Asíuþjóðin, sem áður var eitt Sovétlýðveldanna, tryggir sér sæti á heimsmeistaramóti og ákvað Mirziyoev að sýna þakklæti þjóðarinnar í verki með því að gefa leikmönnum og starfsmönnum úsbeska liðsins 40 BYD rafbíla.
Sætið á HM var í höfn eftir að Úsbekistan gerði markalaust jafntefli við Sameinuðu arabísku furstadæmin í undankeppni Asíu í síðustu viku.
Úsbekar fylgdu jafnteflinu eftir með 3:0-sigri á Katar á heimavelli í Tashkent í lokaumferð undankeppninnar og fengu svo bílana að gjöf í leikslok.