Brasilía og Ekvador á HM

Vinícíus Júnior skoraði sigurmark Brasilíu.
Vinícíus Júnior skoraði sigurmark Brasilíu. AFP/Miguel Schincariol

Brasilía og Ekvador tryggðu sér í nótt sæti á HM 2026 í knattspyrnu karla sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó næsta sumar.

Brasilía vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Carlo Ancelotti með því að leggja Paragvæ að velli, 1:0.

Vinícius Júnior hjá Real Madríd skoraði sigurmark Brassa eftir glæsilegan undirbúning Matheus Cunha, nýs leikmanns Manchester United.

Brasilía hefur tekið þátt á hverju einasta heimsmeistaramóti í sögunni.

Ekvador nægði svo markalaust jafntefli á útivelli gegn Perú og komst þannig á mótið.

Díaz skoraði og Fernández sá rautt

Heimsmeistarar Argentínu, sem voru fyrir margt löngu búnir að tryggja sæti sitt á HM, gerðu jafntefli við Kólumbíu á heimavelli, 1:1.

Luis Díaz, sóknarmaður Liverpool, kom Kólumbíu yfir á 24. mínútu eftir glæsilegt einstaklingsframtak.

Enzo Fernández, miðjumaður Chelsea, fékk beint rautt spjald fyrir ljótt brot á 70. mínútu en einum færri jafnaði Argentína metin níu mínútum fyrir leikslok. Það gerði Thiago Almada.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert