John Carew, leikari og fyrrverandi landsliðsmaður Noregs í knattspyrnu, segir starf samlanda síns Ole Gunnars Solskjær vera bilun.
Solskjær tók við karlaliði Besiktas frá Tyrklandi í byrjun þessa árs en liðið hafnaði í fjórða sæti tyrknesku deildarinnar.
Tyrkneskir stuðningsmenn eru þekktir fyrir að vera mjög ástríðufullir og blóðheitir og hefur meðal annars verið baulað á Solskjær af hans eigin stuðningsmönnum.
Carew spilaði sjálfur með Besiktas sem leikmaður í eitt ár en hann lék einnig á Englandi, Ítalíu og í Frakklandi.
„Fólk veit þetta ekki en að spila fótbolta í Tyrklandi og að vera hluti af tyrknesku fótboltamenningunni er algjör bilun. Solskjær hefur fundið fyrir því,“ sagði Carew hjá Nettavisen.