Ronaldo tjáir sig um framtíðina

Cristiano Ronaldo og Portúgal unnu Þjóðadeildina í gær.
Cristiano Ronaldo og Portúgal unnu Þjóðadeildina í gær. AFP/John Macdougall

Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo er að öllum líkindum ekki á förum frá sádiarabíska félaginu Al-Nassr.

 

Ronaldo tjáði sig um framtíð sína eftir að Portúgal varð Þjóðadeildarmeistari eftir sigur á Spáni í vítakeppni í gær.

„Framtíð? Ekkert mun breytast. Al-Nassr? Já,“ sagði Ronaldo við blaðamenn eftir leikinn í gær en hann skoraði til að jafna metin í 2:2.

Ronaldo hafði verið orðaður við félög sem eru með á HM félagsliða í sumar en virðist allt stefna í að hann verði áfram hjá Al-Nassr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert