Franski varnarmaðurinn Clément Lenglet hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá Atlético Madrid.
Lenglet riftir samningi sínum við Barcelona og gengur til liðs við Atlético á frjálsri sölu. Hann var á láni hjá Atlético á síðustu leiktíð og byrjaði 23 leiki í deildinni.
Atlético getur notað Lenglet á heimsmeistaramóti félagsliða sem hefst næsta laugardag.