De Bruyne hetjan í sjö marka leik

Kevin De Bruyne fagnar sigurmarkinu.
Kevin De Bruyne fagnar sigurmarkinu. AFP/Nicolas Tucat

Belgía vann Wales í sjö marka leik, 4:3, í J-riðli í undankeppni HM karla í knattspyrnu í Brussel í kvöld. 

Belgía er í þriðja sæti riðilsins með fjögur stig en aðeins búið að leika tvo leiki. Wales er í öðru sæti með sjö en búið að leika fjóra leiki. 

Belgar fóru hamförum fyrsta hálftímann og skoruðu þrjú mörk þökk sé Romelu Lukaku, Youri Tielemans og Jérémy Doku. 

Walesverjum tókst hins vegar að jafna metin þökk sé mörkum frá Harry Wilson, Sorba Thomas og Brennan Johnson. 

Kevin De Bruyne reyndist síðan hetja Belga þegar hann skoraði sigurmarkið á 88. mínútu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert