Portúgal er Þjóðadeildarmeistari karla í knattspyrnu eftir sigur á Spáni í vítaspyrnukeppni í München í kvöld eftir að úrslitaleikur grannþjóðanna endaði 2:2.
Spánverjar komust tvisvar yfir í fyrri hálfleiknum. Martin Zubimendi skoraði á 21. mínútu en Nuno Mendes jafnaði fyrir Portúgali fimm mínútum síðar. Mikel Oyarzabal kom svo Spáni aftur yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks og staðan var 2:1 í hálfleik.
Hinn fertugi Cristiano Ronaldo jafnaði fyrir Portúgali á 61. mínútu, 2:2, en hann þurfti svo að fara af velli vegna meiðsla undir lok venjulegs leiktíma.
Ekkert var skorað í framlengingu og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þar dró til tíðinda í fjórðu umferð þegar Diogo Costa markvörður Portúgals varði spyrnu Álvaro Morata.
Rúben Neves skoraði í fimmtu umferð fyrir Portúgal, 5:3, og þar með var sigurinn í höfn.