Íslenska landsliðskonan í knattspyrnu, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Bayer Leverkusen þar sem hún hefur verið undanfarin tvö tímabil á láni frá Bayern München.
Karólína Lea hefur heldur betur nýtt tíma sinn hjá Bayer Leverkusen vel og hefur hún verið feykivinsæl allt frá því hún kom til félagsins. Þar ber helst að þakka frábærri frammistöðu hennar inni á vellinum og einnig hefur hún þótt hress og skemmtileg á samfélagsmiðlum þýska félagsins.
Bayer Leverkusen hefur tekið saman brot af hennar bestu tilþrifum, innan sem utan vallar, hjá félaginu og sett saman í fallegt myndband þar sem Karólína er kvödd.
Myndbandið heitir „Best of Vinnie“ eða bestu tilþrif Vinnie. Karólína er iðulega kölluð Vinnie af liðsfélögum sínum, þar sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er kannsk ekki auðveldasta nafnið í framburði fyrir þýskumælandi fólk.
Karólína á eitt ár eftir af samningi sínum við Bayern München og verður gaman að sjá hvort að hún fái tækifæri með þýska stórliðinu á komandi leiktíð.