Hefur áhyggjur af skoska landsliðinu eftir tap gegn Íslandi

Íslensku leikmennirnir fagna öðru marki liðsins gegn Skotum á dögunum.
Íslensku leikmennirnir fagna öðru marki liðsins gegn Skotum á dögunum. Ljósmynd/Alex Nicodim

Steven Thompson, fyrrum landsliðsmaður Skotlands, segist hafa miklar áhyggjur af skoska karlalandsliðinu í knattspyrnu eftir tapið gegn Íslandi á Hampden Park á föstudag. Leiknum lauk með sigri Íslands, 3:1.

„Það er ekki langt síðan talað var um að Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, gerði ekkert rangt en þetta var tap á heimavelli gegn lakara landsliði en við eigum,“ sagði Thompson sem starfar nú sem sérfræðingur í skoska sjónvarpinu.

„Frammistaða liðsins var afleit. Þegar við förum inn í undankeppnina fyrir HM þá verður svona frammistaða ekki liðin.“

Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, er fyrirliði skoska landsliðsins og var hann meðvitaður um að frammistaða liðsins var ekki nógu góð á föstudag.

„Ég tel að við vitum allir að þetta var alls ekki nægilega gott. Ég vil ekki segja of mikið, við þurfum að rýna í þessa frammistöðu og ræða saman í klefanum áður en við förum að fullyrða eitthvað. Íslenska liðið lék of auðveldlega í gegnum okkur og nýtti öll færin sín. Við sköpuðum einhver færi en nýttum þau ekki,“ sagði Robertson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert