Dregur gagnrýni sína á Heimi til baka

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu.
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu. Ljosmynd/Írska knattspyrnusambandiö

Fyrrverandi landsliðsmaður Írlands í fótbolta, Eamon Dunphy, hefur dregið úr gagnrýni sinni á Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Írlands.

Dunphy, sem starfar nú sem fjölmiðlamaður heima fyrir, var ekki hrifinn af því þegar írska knattspyrnusambandið réði Heimi til starfa síðasta sumar og birti hann harðorðan pistil í september á síðasta ári.

Þar bar hann upp spurninguna um hvort að írska kanttspyrnusambandið hefði virkilega beðið í sjö mánuði eftir náunga eins og Heimi og sagðist hann vera sár og svekktur yfir því að honum sjálfum hafi ekki verið boðið starfið.

Hann sagði m.a. í pistlinum: „Treystið mér þegar ég segi þetta, kálið endist lengur en tannlæknirinn,“ og vitnaði hann þar með í spurningu The Star, þar sem spurt var hvort myndi endast lengur, kálhaus eða Liz Truss sem forsætisráðherra Bretlands.

Dunphy birti hinsvegar nýjan pistil á Irish Mirror á föstudag þar sem hann hrósar Heimi í hástert og segir írska liðið vera á hárréttri leið.

„Írar voru frábærir í kvöld,“ skrifaði Dunphy eftir jafntefli Íra gegn Senegal í vináttuleik á föstudag. „Nú þegar ég horfi á undankeppnisleikina fyrir HM skelf ég ekki af ótta. Ungverjar voru einu sinni frábær knattspyrnuþjóð, en það var árið 1954. Þeir eru ömurlegir núna en við erum að verða betri,“ ritaði Dunphy, en Írar mæta Ungverjum í undankeppni HM í september.

Heimir Hallgrímsson er að vinna hörðustu Írana yfir á sitt …
Heimir Hallgrímsson er að vinna hörðustu Írana yfir á sitt band. Ljosmynd/Írska knattspyrnusambandiö

„Þetta var frábær frammistaða hjá Írum, sú besta sem ég hef séð í mjög langan tíma.“

„Ástríðufullir, orkumiklir og öflugir. Þetta var frammistaða sem lét mig horfa á Heimi Hallgrímsson í nýju ljósi, mann sem ég hef áður verið óhræddur við að gagnrýna.“

„Þegar hann mætti til starfa á síðasta ári talaði hann um að gera Írland að liði sem er erfitt að vinna. Í þessum leik mátti sjá sönnun þess að hugmyndir þjálfarans eru farnar að skila sér inn á völlinn.“

„Við skulum hrósa mönnum þegar þeir eiga það skilið. Það var erfitt að spila á móti Írlandi í kvöld. Það var líka auðvelt að horfa á liðið og líka við þá. Liðið sýndi frammistöðu sem minnti okkur á allt það sem við erum stolt af sem knattspynuþjóð,“ sagði Dunphy að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert