51 árs í landsliðinu fyrir mistök

Outi Saarinen landsliðsþjálfara varð á í messunni.
Outi Saarinen landsliðsþjálfara varð á í messunni. Ljósmynd/Knattspyrnusamband Finnlands

Outi Saarinen, þjálfari finnska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur beðist afsökunar á því að hafa fyrir mistök valið 51 árs leikmann með sama eftirnafn og 23 ára leikmaður í leikmannahóp sinn.

Saarinen valdi fyrrverandi landsliðskonuna Stinu Ruuskanen en hún lagði skóna á hilluna fyrir margt löngu og lék síðast landsleik árið 1996.

Ætlaði Saarinen að velja Nanne Ruuskanen, varnarmann Djurgården. Þegar mistökin uppgötvuðust var það um seinan og því gat Nanne ekki tekið þátt í tveimur leikjum Finnlands í 3. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar í liðinni viku.

„Nanne var auðvitað vonsvikin en tók fréttunum vel miðað við kringumstæðurnar. Mér þykir það mjög leitt að hafa gert þessi mistök,“ sagði Saarinen í viðtali á heimasíðu finnska knattspyrnusambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert