Englandsmeistarar Liverpool hyggjast virkja kaupákvæði í samningi hollenska knattspyrnumannsins Jeremie Frimpong, sem leikur með Bayer Leverkusen.
Breska ríkisútvarpið og The Times eru á meðal þeirra miðla sem greina frá því að Liverpool muni virkja ákvæði upp á 29,5 milljónir punda í samningi hins fjölhæfa Frimpongs.
Hann leikur oftast í stöðu hægri vængbakvarðar en getur einnig spilað í hægri bakverði, hægri kanti og sem sóknarsinnaður miðjumaður.
Talið er líklegast að Liverpool hugsi Frimpong sem arftaka hægri bakvarðarins Trent Alexander-Arnold, sem er á förum til Real Madríd.
Viðræður Liverpool og Leverkusen eru sagðar ganga vel og er Frimpong, sem varð Þýskalandsmeistari með Leverkusen á síðasta ári, áhugasamur um að semja við Englandsmeistarana.