Sviptingar í formúlunni

Jack Doohan fékk aðeins sex keppnir.
Jack Doohan fékk aðeins sex keppnir. AFP/Chandan Khanna

Forráðamenn Formúlu 1-liðsins Alpine hafa ákveðið að Franco Colapinto muni keyra annan bíl liðsins í næstu fimm keppnum hið minnsta.

Mun Colapinto leysa Jack Doohan af hólmi en þeir eru báðir nýliðar í Formúlu 1 á tímabilinu.

Er ákvörðunin tekin eftir aðeins sex keppnir á tímabilinu en Doohan hefur enn ekki náð í eitt einasta stig fyrir franska liðið.

Pierre Gasly, hinn ökuþór Alpine, er í 12. sæti í keppni ökuþóra með sjö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert