Þýska knattspyrnustjarnan Florian Wirtz er genginn til liðs við Englandsmeistara Liverpool en þetta tilkynnti félagið rétt í þessu.
Wirtz kemur til Liverpool frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Liverpool greiðir Leverkusen 100 milljónir punda fyrir leikmanninum auk þess sem 16 milljónir gætu bæst við að ákveðnum ákvæðum uppfylltum.
Wirtz skrifar undir fimm ára samning í Liverpool-borg en hann hefur spilað afar vel með Leverkusen en hann skoraði 10 mörk og gaf 12 stoðsendingar í deildinni á nýafstöðnu tímabili.
Þá varð hann þýskur deildar- og bikarmeistari í fyrra og er orðinn lykilmaður í þýska landsliðinu þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall.