Chelsea hefur viðræður um ungstirnið

Chelsea er á eftir Belganum Malick Fofana.
Chelsea er á eftir Belganum Malick Fofana. AFP/Oliver Chassignole

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur hafið viðræður við franska félagið Lyon um ungstirnið Malick Fofana. 

L'Équipe segir frá en Fofana er tvítugur kantmaður sem gekk í raðir Lyon frá Gent fyrir einu og hálfu ári. 

Hann byrjaði 16 leiki í deildinni á síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk og gaf fjórar stoðsendingar. 

Fofana er með samning hjá Lyon til sumarsins 2028 og mun Chelsea því þurfa að greiða í kringum 50 milljónir evra fyrir leikmanninn, vilji félagið fá hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert