Vill frekar United en Tottenham

Bryan Mbeumo skoraði 20 mörk í úrvalsdeildinni í vetur.
Bryan Mbeumo skoraði 20 mörk í úrvalsdeildinni í vetur. AFP/Henry Nicholls

Manchester United virðist vera með betri stöðu í baráttunni við Tottenham um fransk/kamerúnska knattspyrnumanninn Bryan Mbeumo.

Í dag greindi Sky Sports frá því að viðræður Tottenham við Brentford um kaup á framherjanum væru komin af stað en Thomas Frank, nýr stjóri Tottenham, vill ólmur fá hann með sér yfir í Norður-London.

Manchester United hefur þegar gert Brentford tilboð í Mbeumo sem var hafnað en samkvæmt nýjum fréttum Sky Sports í kvöld vill leikmaðurinn sjálfur frekar fara til United. Þegar sé komið munnlegt samkomulag um að hann fari þangað en Frank muni gera úrslitatilraun til að reyna að telja honum hughvarf.

Mbeumo sem er 25 ára gamall átti frábært tímabil með Brentford en hann skoraði 20 mörk fyrir liðið í úrvalsdeildinni og átti sjö stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert