Tilboð Liverpool í Wirtz formlega samþykkt

Florian Wirtz í leik með þýska landsliðinu.
Florian Wirtz í leik með þýska landsliðinu. AFP/Tobias Schwarz

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur fengið samþykkt tilboð upp á samtals 116 milljónir punda í þýska sóknartengiliðinn Florian Wirtz, leikmann Bayer Leverkusen.

Skiptin hafa legið lengi í loftinu en nú hafa hinir áreiðanlegu Paul Joyce hjá The Times og David Ornstein hjá The Athletic greint frá því að félögin hafi komist að samkomulagi.

Áður hafði félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano skýrt frá því að allt væri klappað og klárt en sagði upphæðina þá vera 127 milljónir punda.

Gæti orðið sá dýrasti á Bretlandseyjum

Liverpool greiðir Leverkusen 100 milljónir punda auk þess sem 16 milljónir gætu bæst við að ákveðnum ákvæðum uppfylltum.

Takist að uppfylla þau verður Wirtz dýrasti leikmaður sem hefur verið keyptur til Bretlandseyja og þriðji dýrasti leikmaðurinn í sögunni á eftir Neymar og Kylian Mbappé.

Þjóðverjinn, sem er 22 ára, mun skrifa undir fimm ára samning við Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka