Liverpool blandar sér í baráttuna um framherja

Victor Osimhen.
Victor Osimhen. AFP/Ozan Kose

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Liverpool hafa blandað sér í baráttuna um nígeríska framherjann Victor Osimhen.

Það er bandríski íþróttamiðillinn GiveMeSport sem greinir frá þessu en Osimhen, sem er 26 ára gamall, er samningsbundinn Ítalíumeisturum Napoli.

Hann lék með Galatasaray í Tyrklandi á láni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 26 mörk í 30 leikjum í efstu deild Tyrklands, ásamt því að leggja upp fimm mörk.

Fer ekki til Sádi-Arabíu

Framherjinn hefur verið sterklega orðaður við Al Hilal í Sádi-Arabíu en hann hafnaði því að ganga til liðs við félagið þar sem hann vill halda áfram að spila í Evrópu.

Hann hefur meðal annars verið orðaður við Manchester United en hann er sagður spenntur fyrir því að reyna fyrir sér í ensku úrvalsdeildinni.

Forráðamenn Napoli vilja losna við framherjann sem kostar í kringum 75 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert