Sex leikmenn sem kostuðu samtals rúmlega 33 milljarða íslenskra króna eru ekki í leikmannahópi Chelsea sem hefur verið tilkynntur fyrir heimsmeistaramót félagsliða í knattspyrnu sem hefst í Bandaríkjunum um helgina.
Sexmenningarnir virðast ekki vera inni í myndinni hjá Chelsea fyrir komandi keppnistímabil en þetta eru sóknarmaðurinn Joao Felix, markvörðurinn Djordje Petrovic, kantmaðurinn Raheem Sterling og varnarmennirnir Alex Disasi, Ben Chilwell og Renato Veiga.
Allir þessir leikmenn voru lánaðir til annarra félaga á síðasta tímabili og samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa hvorki Felix né Sterling fengið treyjunúmer fyrir næsta tímabil.
Þá er Wesley Fofana ekki í hópi enska liðsins fyrir mótið en hann missir af því vegna meiðsla.