Hækkuðu verðmiðann í 70 milljónir

Alejandro Garnacho fer væntanlega frá Manchester United á næstu vikum.
Alejandro Garnacho fer væntanlega frá Manchester United á næstu vikum. AFP/Peter Parks

Manchester United vill fá 70 milljónir punda fyrir argentínska knattspyrnumanninn Alejandro Garnacho.

Þetta segir The Independent í kvöld en mörg félög hafa falast eftir þessum tvítuga sóknarmanni og væntanlegt kaupverð hefur verið talið vera um 60-65 milljónir punda.

Bayer Leverkusen, Napoli, Atlético Madrid, Chelsea og Aston Villa eru öll sögð vilja fá Garnacho í sínar raðir  en hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Manchester United.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Garnacho þegar leikið 144 mótsleiki fyrir United, þar af 93 leiki í úrvalsdeildinni, og skorað í þeim 26 mörk. Hann kom til félagsins sextán ára gamall frá Atlético Madrid á Spáni en hann er fæddur í spænsku höfuðborginni og á spænskan föður og argentínska móður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert